MD Reykjavík

Útgáfa

MD Reykjavík gefur út fjölbreytt úrval upplýsinga- og afþreyingarmiðla fyrir ferðamenn.

What's On in Reykjavik

What’s On in Reykjavík er einn helsti upplýsingamiðill ferðamanna á höfuðborgarsvæðinu. Blaðið hefur komið út síðan 1982 og er gefið út mánaðarlega í 12.000-15.000 eintökum. Því er dreift á flesta gististaði í Reykjavík, sem og á helstu ferðamannastaði á höfuðborgarsvæðinu. Upplýsingamiðstöðvar What’s On og vefurinn whatson.is styðja við útgáfuna og sjá til þess að öllum upplýsingaþörfum ferðamanna sé fullnægt.

Around Iceland

Around Iceland er viðamikil leiðsögubók um Ísland og inniheldur ítarlegar upplýsingar um bæjarfélög og áfangastaði um land allt. Around Iceland kemur út á ensku í 120.000 eintökum á ári. Bókin er einna helst hugsuð fyrir self-drive ferðamenn. Hún er í dreifingu allt árið á bílaleigum, bensínstöðvum og öllum helstu ferðamannastöðum um allt land auk dreifingar í Norrænu frá mars-okt.

Akureyri & North Guide

Í Akureyri & North Guide má finna allar helstu upplýsingar um höfuðstað Norðurlands og nærliggjandi bæjarfélög. Akureyri Guide kemur út í 35.000 eintökum einu sinni á ári og er dreift allt árið í kring á helstu ferðamannastöðum Norðurlands, ásamt völdum stöðum á höfuðborgarsvæðinu. Akureyri Guide er opinbert blað Akureyrar og norðursins.

Reykjavik City Guide

Vandaðasta upplýsingabók höfuðborgarsvæðisins. Bókin kemur út að vori í 100.000 eintökum og er dreift jafnt yfir árið. Reykjavík City Guide er opinbert rit borgarinnar og unnið í samstarfi við Reykjavíkurborg. Ritið er dreift um allt stórhöfuðborgarsvæðið, Suðurland og Suðurnes.

Museum Guide

Museum Guide er helsta safnabókin á Íslandi en hún kemur út á ensku í 40.000 eintökum á ári. Bókin inniheldur ítarlegar upplýsingar um söfn á öllu landinu ásamt staðsetningu þeirra. Bókinni er dreift á allar helstu upplýsingamiðstöðvar og viðkomustaði ferðamanna um land allt.

Map of Iceland

Map of Iceland er eitt vinsælasta ferðamannakort Íslands og kemur út í 240.000 eintökum yfir árið. Kortið hefur að geyma fróðlegar upplýsingar um land og þjóð ásamt ítarlegu vegakorti. Kortinu er dreift á upplýsingamiðstöðvar, bensín stöðvar, bílaleigur og Norrænu ásamt helstu áfangastöðum ferðamanna.

Hafðu samband

Ef þú vilt vita meira um útgáfuna eða auglýsingar, ekki hika við að hafa samband.

MD Reykjavík
Laugavegur 3, Reykjavik
+354 537-3900
[email protected]

Sölustjóri
Reynir Elís Þorvaldsson
+354 846-1799
[email protected]